
Markmið Vesturheims – vináttufélags er að rækta tengsl og efla samstarf Kanada- og Bandaríkjamanna af íslenskum ættum, Íslandsvina vestanhafs og Íslendinga – með fjölbreyttum hætti.
Vesturheimur – vináttufélag, byggir á því að vesturferðir Íslendinga á árunum 1870–1920 eru einn merkasti og áhrifamesti viðburður Íslandssögunnar. Með vesturferðunum urðu Íslendingar þátttakendur í heimssögulegum atburðum er mikill straumur fólks, frá Evrópu og víðar að, flykktist til Ameríku og ný heimsmynd varð til.
Með fjölbreyttu menningar- og fræðslustarfi vill félagið tryggja að þessi mikilvæga arfleifð haldist lifandi og að áhrif vesturferðanna verði áfram sýnileg í íslensku samfélagi.
Vesturheimur – vináttufélag eflir tengsl Íslendinga við afkomendur Íslendinga sem flust hafa til Kanada og Bandaríkjanna og Íslandsvina vestanhafs með því að:

Vesturfarar um borð í Camoens e/s árið 1886. Ljósmynd: Sigfús Eymundsson.
137. Íslendingadagurinn í Gimli var haldinn hátíðlegur þann 7. ágúst. Hér má kynna sér viðburðinn.








Vesturheimi er ætlað að viðhalda og efla tengsl Íslendinga við afkomendur Íslendinga sem flust hafa til Ameríku, einkum Kanada og Bandaríkjanna. Arfleifð Íslendinga sem fluttust vestur um haf er hluti af sögu okkar og menningu sem okkur ber skylda til að varðveita. Það gerum við best með því að tengjast afkomendum þeirra með gagnkvæmum samskiptum á sem flestum sviðum.
Vesturheimur hefur í samvinnu við Norræna félagið á Íslandi staðið fyrir Snorraverkefninu sem veitir ungu fólki af íslenskum ættum í Norður-Ameríku tækifæri til að kynnast rótum sínum á Íslandi í 6 vikna sumarverkefni. Þegar heim er komið hafa mörg þessara ungmenna gerst virk í starfi Íslendingafélaganna í Kanada og Bandaríkjunum. Þá hafa nokkur þeirra lagt stund á íslenskunám hér á landi. Þessi ungmenni og fjölskyldur þeirra hafa tengst vináttuböndum við íslensk skyldmenni sem þau dvöldu hjá á Íslandi. Þannig hefur verkefnið flutt íslensku arfðleifðina í Vesturheimi frá eldri kynslóð til þeirrar yngri.
Með því að gerast félagi í félaginu og taka virkan þátt í starfsemi þess eða leggja því lið með árgjaldi sínu stuðlar þú að því að þessi mikilvægi menningararfur okkar glatist ekki, heldur verði ljóslifandi hjá fólki beggja vegna Atlantsála. Árgjald er 4.000 kr.

Markmið Vesturheims – vináttufélags er að rækta tengsl og efla samstarf Kanada- og Bandaríkjamanna af íslenskum ættum, Íslandsvina vestanhafs og Íslendinga – með fjölbreyttum hætti.
Vesturheimur – vináttufélag, byggir á því að vesturferðir Íslendinga á árunum 1870–1920 eru einn merkasti og áhrifamesti viðburður Íslandssögunnar. Með vesturferðunum urðu Íslendingar þátttakendur í heimssögulegum atburðum er mikill straumur fólks, frá Evrópu og víðar að, flykktist til Ameríku og ný heimsmynd varð til.
Með fjölbreyttu menningar- og fræðslustarfi vill félagið tryggja að þessi mikilvæga arfleifð haldist lifandi og að áhrif vesturferðanna verði áfram sýnileg í íslensku samfélagi.

Vesturheimur – vináttufélag eflir tengsl Íslendinga við afkomendur Íslendinga sem flust hafa til Kanada og Bandaríkjanna með því að:
137. Íslendingadagurinn í Gimli var haldinn hátíðlegur þann 7. ágúst. Hér má kynna sér viðburðinn.








Vesturheimi er ætlað að viðhalda og efla tengsl Íslendinga við afkomendur Íslendinga sem flust hafa til Ameríku, einkum Kanada og Bandaríkjanna. Arfleifð Íslendinga sem fluttust vestur um haf er hluti af sögu okkar og menningu sem okkur ber skylda til að varðveita. Það gerum við best með því að tengjast afkomendum þeirra með gagnkvæmum samskiptum á sem flestum sviðum.
Vesturheimur hefur í samvinnu við Norræna félagið á Íslandi staðið fyrir Snorraverkefninu sem veitir ungu fólki af íslenskum ættum í Norður-Ameríku tækifæri til að kynnast rótum sínum á Íslandi í 6 vikna sumarverkefni. Þegar heim er komið hafa mörg þessara ungmenna gerst virk í starfi Íslendingafélaganna í Kanada og Bandaríkjunum. Þá hafa nokkur þeirra lagt stund á íslenskunám hér á landi. Þessi ungmenni og fjölskyldur þeirra hafa tengst vináttuböndum við íslensk skyldmenni sem þau dvöldu hjá á Íslandi. Þannig hefur verkefnið flutt íslensku arfðleifðina í Vesturheimi frá eldri kynslóð til þeirrar yngri.
Með því að gerast félagi í félaginu og taka virkan þátt í starfsemi þess eða leggja því lið með árgjaldi sínu stuðlar þú að því að þessi mikilvægi menningararfur okkar glatist ekki, heldur verði ljóslifandi hjá fólki beggja vegna Atlantsála. Árgjald er 4.000 kr.
Óðinsgötu 7
101 Reykjavík
Persónuverndarstefna